Psalms 36

1Til söngstjórans. Eftir Davíð, þjón Drottins. 2Rödd syndarinnar talar til hins guðlausa í fylgsnum hjarta hans, enginn guðsótti býr í huga hans. 3Hún smjaðrar fyrir honum í augum hans og misgjörð hans verður uppvís og hann verður fyrir hatri. 4Orðin af munni hans eru tál og svik, hann er hættur að vera hygginn og breyta vel. 5Í hvílu sinni hyggur hann á tál, hann fetar vonda vegu, forðast eigi hið illa. 6Drottinn, til himna nær miskunn þín, til skýjanna trúfesti þín. 7Réttlæti þitt er sem fjöll Guðs, dómar þínir sem reginhaf. Mönnum og skepnum hjálpar þú, Drottinn. 8Hversu dýrmæt er miskunn þín, ó Guð, mannanna börn leita hælis í skugga vængja þinna. 9Þau seðjast af feiti húss þíns, og þú lætur þau drekka úr lækjum unaðsemda þinna. 10Hjá þér er uppspretta lífsins, í þínu ljósi sjáum vér ljós. 11Lát miskunn þína haldast við þá er þekkja þig, og réttlæti þitt við þá sem hjartahreinir eru. 12Lát eigi fót hins hrokafulla troða á mér né hönd óguðlegra hrekja mig burt. [ (Psalms 36:13) Þar eru illgjörðamennirnir fallnir, þeim er varpað um koll og þeir fá eigi risið upp aftur. ]
Copyright information for Icelandic